Rafhlöðu ábyrgð Aviloo
Eins árs ábyrgð, innan 20.000 km með 3000 EUR / 425.000 ISK greiðslu ef heilsa fellur undir tiltekin viðmið.
Nánar hér
AVILOO batterí ábyrgð
Meiri trygging fyrir rafhlöðu á notuðum rafbíl
AVILOO Battery Warranty Basic þjónustan veitir eigendum notaðra rafbíla aukna vernd gegn óeðlilegri rýrnun á afkastagetu rafhlöðunnar. Ábyrgðin byggir á niðurstöðum úr AVILOO hraðprófi , óháðri rafhlöðugreiningu AVILOO.
Hvað felst í ábyrgðinni?
Ef ástand rafhlöðunnar (State of Health – SoH) lækkar niður fyrir þau mörk sem AVILOO hefur reiknað sérstaklega fyrir viðkomandi ökutæki innan ábyrgðartímans, getur eigandi átt rétt á:
3.000 EUR fastri greiðslu frá AVILOO
Ábyrgðin gildir í 12 mánuði eða 20.000 km, hvort sem kemur fyrst.
Hvernig virkar ábyrgðin?
Við upphaf ábyrgðar er núverandi ástand rafhlöðunnar mælt með AVILOO hraðprófi. Út frá niðurstöðu prófsins, umfangsmiklum gagnagrunni AVILOO og gagnadrifnu líkani fyrir viðkomandi bíltegund eru reiknuð einstaklingsbundin SoH-mörk (%).
Ef rafhlaðan fer síðar niður fyrir þessi mörk innan ábyrgðartímans er hægt að leggja fram ábyrgðarkröfu.
Til að staðfesta kröfuna er framkvæmd annað AVILOO hraðpróf. Ef krafan er staðfest frá Aviloo greiðir AVILOO 3.000 EUR og endurgreiðir jafnframt kostnaðinn við seinna hraðprófið.
Helstu atriði
3.000 EUR / 430.000 ISK föst greiðsla ef ábyrgðarkrafa er staðfest
12 mánaða / 20.000 km ábyrgð – hvort sem kemur fyrst.
Bundin við VIN-númer ökutækisins og færist yfir til nýs eiganda við eigendaskipti.
Byggir á óháðri og hlutlægri mælingu með AVILOO hraðprófi (flash test)
Gildir óháð framleiðanda fyrir þær bíltegundir sem eru innan AVILOO-gagnagrunnsins
Aðeins ein greiðsla á hvert ökutæki.
Hverjir geta fengið ábyrgðina?
Ábyrgðin er í boði í gegnum samstarfsaðila AVILOO fyrir notaða rafbíla sem uppfylla skilyrði ábyrgðarinnar.
Ökutækið þarf meðal annars að hafa lokið hraðprófi með fullnægjandi niðurstöðu, bíltegundin þarf að vera innan ábyrgðarþekju AVILOO og ástand rafhlöðunnar þarf að uppfylla skilyrði ábyrgðarinnar.
AVILOO batterí ábyrgðin er aukin trygging fyrir verðmætustu íhlutum rafbílsins.
Hraðpróf & rafhlöðu ábyrgð →
“Að geta fengið niðurstöður um heilsu á rafhlöðu á 10-15 mínútum ásamt 1 árs ábyrgð á batteríinu er auðvitað mjög traustvekjandi þegar maður er að kaupa notaðan rafbíl fyrir ekki meiri kostnað”
Viðskiptavinur 200