Aviloo heilsumæling

Við bjóðum upp á óháða heilsufarsmælingu á rafhlöðum rafbíla og tengiltvinnbíla. 

Alþjóðlega viðurkennt mælitæki

Við notum Aviloo prófunarkerfið sem er leiðandi lausn á heimsvísu og alþjóðlega viðurkennt mælitæki til að greina raunverulegt ástand rafhlöðunnar í bílnum þínum.

Tæknin sem við notum er þróuð í Evrópu og hefur verið tekin í notkun af bílaframleiðendum sjálfum eins og Mercedes Benz, Volkswagen, Hyundai og Renault.

Niðurstaðan er skýrsla sem eigandi eða væntur kaupandi bíls fær í hendurnar.


Þjónustan

Hraðgreining (e. flash test)

Hraðpróf →

Hraðgreining rafhlöðu er algengasta prófið og mælir rafhlöðuheilsu bílsins og tekur fljótan tíma og gefur góðar og áreiðanlegar niðurstöður. 

  • Mælir heilsuna á rafbílnum og tengiltvinn bílum.

  • Við bjóðum upp á greiningu á staðnum og sjáum um alla framkvæmd. 

  • Tekur um 10-15 mínútur.

Bókanir fara fram hér eða í síma (+354) 571-1123.


Djúpgreining (e. premium test)

Djúpgreining →

Djúpgreining rafhlöðu (premium test) er ítarlegra próf og skilar nákvæmari niðurstöðum en er umfangsmeiri í framkvæmd.

Bíllinn er hlaðinn í 100% og tækið tengt við bílinn í 100% hleðslu, bílnum er svo ekið niður í 10% á meðan tækið safnar gögnum.

Ekki þarf að aka samfleytt eða á einum degi á meðan tækið er að greina en ljúka þarf akstrinum innan ákveðins tímaramma.

Niðurstöður berast eftir 2 virka daga.

Bókun fara fram hér eða í síma (+354) 571-1123.

Aviloo tæknin er þróuð í Evrópu og hefur verið tekin í notkun af bílaframleiðendum eins og Mercedes Benz, Volkswagen, Hyundai og Renault.

  • Aviloo er viðurkennd lausn á alþjóðavísu í samstarfi við fjölda þekktra fyrirtækja. Algeng orðanotkun á lausninni er þessi:

    • Heilsufarsmæling rafhlöðu / rafhlöðumæling

    • Batteríheilsu / mæla batterí í rafbíl

    • Rafhlöðupróf / rafbíla batterí próf

    • Battery health check / EV battery test

    • State of Health (SoH) mæling rafbíll

    • Rafbílastöðin rafhlöðu skoðun

    • Fyrir þá sem eru kaupa eða selja notaðan rafbíl.

    • Fyrir þá sem vilja raunsæja mynd af ástandi rafhlöðunnar á þínum bíl.

    • Fyrir þá sem eru bera saman bíla eða tryggja verðmat.

    • Tryggir að þú sért ekki að kaupa bíl með földu rafhlöðu vandamáli

    • Verndar líka seljanda gegn ósanngjörnum kröfum, með traustu og hlutlægu vottorði.

    • Gerir verðlagningu sanngjarna og gagnsæja – því rafhlaðan ræður jú verðmæti rafbíls.

    • Byggir upp traust á notuðum rafbílum og hjálpar markaðnum að þroskast, það er það mikilvæga.

    • Lausnin nær til 95% raf- og tengiltvinnbíla á markaðnum

    • Aviloo er viðurkennd lausn á Alþjóðavísu í samstarfi við fjölda þekktra fyrirtækja 

Hvað greinir lausninn?

Jafnvægi milli sella og hitadreifingu í rafhlöðunni og gefur einkunn.

Ójafnvægi í sellum í rafhlöðu þýðir að sumar sellur eru hlaðnar eða tæmdar meira en aðrar. Þetta leiðir til þess að sumar sellur verða ofhlaðnar eða oftæmdar, sem skemmir þær hraðar, minnkar endingartíma rafhlöðunnar, og getur jafnvel valdið öryggisvandamálum eins og ofhitnun. Því er mikilvægt að sellurnar séu í jafnvægi til að rafhlaðan haldi góðri heilsu, öruggri notkun og hámarks afköstum

Hvernig bíllinn hefur verið hlaðinn og keyrður yfir líftíma rafhlöðunnar, þ.e notkunarmynstur og gefur einkunn eftir því, hér kæmi þá kannski vísbending um notkun eins og hraðhleðslu, hlaðinn oft upp í topp eða annað af því sem við nefndum.

Síðast en ekki síst prósentu heilsu rafhlöðu að mati þessa prófunar.

Á skýrslunni kemur einnig fram hvort ekki hafi örugglega náðst góð samskipti við miðlægan samskiptabúnað fyrir rafhlöðuna eða bílinn til að tryggja að gögnin séu áreiðanleg eða út frá réttum samskiptum.

Lausni er líka með stuðning við DoIP, sem er s.s diagnostics over internet protocol, sem er að koma inn núna og sumir framleiðendur byrjaðir að skipta yfir í það eins og Benz og Stellantis, þetta hefur að gera með uppfært aðgengi að gögnum, hraðari aðgengi mögulega og betra raunaðgengi að gögnum, það er orðið flóknari tölvubúnaður i bílum en það sem skiptir máli hér er að við erum með lausn sem aðlagar sig að því og getum þ.a.l talað um að ná 95% af bílum í svona greiningu.