Persónuvernd

Fyrirtæki mega nýta staðsetningareftirlit með bifreiðum sínum, svo lengi sem það þjónar skýrum og lögmætum tilgangi. Slík notkun getur til dæmis stuðlað að betra skipulagi í rekstri, aukinni skilvirkni, meira öryggi, betri þjónustu og enn fremur lægri rekstrarkostnaði. Athugið að vöktun í leynd er með öllu óheimil

Ekki er skylt að senda sérstaka tilkynningu til Persónuverndar vegna innleiðingar á ferilvöktunarkerfi eða flotastjórnunarkerfi.

Hins vegar ber fyrirtækjum að tryggja innleiðingu persónuverndar, t.d fræðslu, hagsmunamati, mat á áhrifum persónuverndar, hvinnsluskrá o.s.frv. Síðast en ekki síst að starfsfólk sem ekur á bifreiðum með flotabúnaði og/eða myndavélabúnaði sé upplýst á skýran og tímanlegan hátt um að vöktun eigi sér stað og hvernig, hvenær hún á sér stað, til dæmis með upplýsingagjöf á fundu, í skriflegum tilkynningum í tölvupósti og skriflega staðfestingu á blaði. Hægt er að fá drög að skjali fyrir viðskiptavini Parallel til að upplýsa aðila um ferilvöktun með skýrum hætti sé þess óskað.

Fyrirtæki setja jafnframt límmiða í rúður bifreiða eða tækja sem upplýsir ökumann og tilkynna þar með ferilvöktunina.

Parallel minnir alla viðskiptavini sem innleiða flotakerfið á mikilvægi þess að virða persónuvernd í sinni starfsemi, upplýsir um það með reglubundnum hætti á áskriftarreikningum og hefur vinnslusamninga til staðar.

Upplýsingasöfnun með ferilvöktunarbúnaði felur í sér rafræna vöktun í skilningi laga nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga („persónuverndarlaga“), sbr. einnig reglur nr. 50/2023 um rafræna vöktun. Ábyrgðaraðili vöktunarinnar er fyrirtækið sem innleiðir búnaðinn.

Geotab kerfið leggur mikla áherslu á innbyggða persónuvernd og öryggi gagna í kerfinu, sem dæmi er hægt að afmá andlit í myndavélabúnaði sem möguleiki í kerfinu. Allt um öryggisstefnu og persónuvernd má lesar nánar um hér:

Öryggi gagna : https://www.geotab.com/security/

Persónuvernd : https://www.geotab.com/about/privacy/

Gögn er hýst hjá Google Cloud Platform í Evrópu (Belgíu).

Close-up of a pink poppy flower with dewdrops on its petals, showing the green center and yellow stamens.