Electric vehicle charging port with a plugged-in charging cable, rain droplets on the surface.

Orkuskipti bifreiðaflota

Orkuskipti með Parallel eru 360 gráðu ráðgjöf og greining í orkuskiptum og uppbyggingu hleðsluinnviða.

Kynntu þér fjárhags- og umhverfis ávinning af að innleiða rafdrifna bíla í rekstur fyrirtækisins.

A grid of green X's and gray plus signs on a light beige background.

Auðkenndu tækifærin!

Með Parallel fylgjum við fyrirtækinu græna vegferð í bifreiðamálum. Við tengjum allan flotann fyrir þig að fá yfirsýn og stjórn á sama tíma og við auðkennum tækifærin sem felast í orkuskiptum og tryggjum hagfelld útskipti í flóknu umhverfi.

Electric vehicle suitability assessment report with data on plug-in hybrid electric vehicles, battery electric vehicles, and no electric fit, showing cost, energy, and carbon savings.

Hugbúnaðurinn segir þér nákvæmlega hversu stórt hlutfall flotans er fýsilegt í rafbíla m.v drægniþörf og framboð á markaði. Miðað er við raundrægni og raunakstur bílaflotans þar sem hann er mældur með innbyggðum búnaði.

Yfirlit eftir greiningartímann segir þér væntan fjárhagslegan- og umhverfis ávinning í minni rekstrarkostnaði og útblæstri.

Hæfnismat til orkuskipta er hugbúnaðarlausn inn í Geotab kerfinu sem mælir raun notkun á fyrirtækjaflotanum þínum og er jafnframt knúin áfram að einu stærsta gagnasafni um raundrægni og frammistöðu rafbíla í rekstri.

Niðurstöður eru því gagnadrifnar (e. data driven) sem gera umskipti þín á bifreiðaflota fyrirtækisins yfir í rafmagn eins raunhæfaa og hagfellda og mögulegt verður. Óvissu við orkuskipti eru lágmörkuð og greiningarvinnan skilar fjárhagslega arðbærari vegferð. Þú færð nákvæmt yfirlit yfir mynstur flotans og berð kennsl á bifreiðar sem henta best í rafbilaskipti.

A dashboard displaying a report titled 'Vehicles with Suitable EV Recommendations' showing a list of vehicle models, their groups, recommendations, types, range capabilities, and lifetime savings, with section headers and colorful bar charts at the bottom.

Niðurstöður gefa þér sérsniðnar ráðleggingar um gerð rafbíla út frá framboði rafbíla á markaði þar sem tekið er tillit til frammistöðu þeirra við erfið veðurskilyrði. Tölulega niðurstöður yfir fjárhags- og umhverfisávinning með innleiðingu rafbíl út frá raunakstur fyrirtækisins.

A screen displaying a report titled 'Annual CO2 Tailpipe Emission Summary' with a graph comparing assessment recommendation and selected fleet vehicles. A circular icon with a green leaf shows 'Annual CO2 Reduction: 4,200 tons (23%)'.
A chart comparing the costs of battery replacement scenarios for electric vehicles, showing total costs, with breakdowns for procurement, maintenance, fuel, electricity, and other expenses, highlighting savings of $235,137.

Innviðagreining

Green and black arrow symbol pointing to the right.

Hvert setjum við hleðslustöðvar?

Hvar fyrirtækið byggir upp innviða er mjög háð notkun flotans og þar skipta stopp greiningar og dvalartímar lykilmáli í greiningunni með Parallel. Flest fyrirtæki offjárfesta eða vanfjárfesta í innviðum og tapa á því. Gögnin segja þér á hvaða stöðum þú átt að byggja innviði (höfuðstöðvar, starfsstöðvar, heima, á-leið o.s.frv.) og hversu mikla hleðsluþörf (AC 11kW, 22kW eða 50+ kW DC) þörf er á eftir staðsetningum og sviðum.

Diagonal black and beige striped pattern.

Hvað þarf ég margar hleðslustöðvar?

Fjöldi og tegund á hleðslustaðsetningar fer eftir stopptíma og notkun flotans og er eitt af því sem greiningin skilar niðurstöðum um svo mikilvægt er að byggja á raungögnum til að ofáætla ekki eða vanáætla uppbygginguna miða við heildarflotann.

Orkuskipti HSN 2024

Parallel & Heilbrigðisstofnun Norðurlands gerðu með sér orkuskiptasamning árið 2023 um greiningu á flotanum til orkuskipta og uppbyggingu hleðsluinnviða í krefjandi aðstæðum. Niðurstaðan sýndi fram á umtalsverðan fýsileika fyrir HSN að ganga lengra í orkuskiptum. Í dag er stofnunin að nálgast 50% af flotanum í rafdrifnum lausnum.

Screenshot of a map with data visualizations showing vehicle dwell metrics at a zone named Skarðshlíð, including parameters like average vehicle dwelling, maximum vehicles dwelling, stop duration distribution, and related statistics.
Five men standing in front of a modern building with the logos 'HSN' and 'Sunnuhld', with a red and a white car parked behind them. The men are dressed in business casual attire.
Map of Iceland showing various locations with icons indicating electrical storms and disruptions, with a cluster of blue heatmap areas and the city of Reykjavik labeled in the southwest.
Aerial view of a highway with multiple lanes and overpass bridges, with a large green stylized arrow overlay.

Fjárhagslegur ávinningur

Mun orkuskipti lækka rekstrarkostnað ?

 Ef svo er, hversu mikið? Uppgötvaðu möguleikan á kostnaðarsparnaði og sjáðu heildarkostnað við eignarhald þegar skipt er yfir í rafbíla m.v leigu eða kaup

Forsendur raforkuverðs & olíuverðs eru settar inn ásamt áætluðum rekstrarkostnaði m.v gjöld, skatta, tryggingar, viðhald o.s.frv.

 Sjáðu hvernig Enterprise bílaleigan nýtti sér raunveruleg gögn í stað ályktanna í orkuskiptum hér.

A person plugging an electric vehicle charger into a car's charging port on a rainy day. The car is brown with water droplets on its surface.

Drægniþörf

Drægnivissa (e. range assurance) fæst með mælingu á raunakstursgögnum og samanburði þeirra á framboði allra rafdrifinna bifreiða og væntri drægni þeirra að teknu tilliti til verstu aðstæðna

Niðurstöður sýna þér hvort bensín eða díselbíllinn geti verið skipt út fyrir rafbíl miða við að eingöngu sé hlaðið yfir nóttu eða utan vinnutíma. Svo þú getur fullvissað þig um að þú getir klára daginn á væntri drægni meira segja miða við verstu aðstæður (kulda, langkeyrslu o.fl). Að auki byggir þú þekkingu á hleðsluþörf til að hátta fyrirkomulag hleðslu til að lágmarka áhrif á vinnuframlag í akstri.

 Þannig færðu nákvæmar tillögur um rafbílagerð sem henta verkefnum fyrirtækisins. Þessi ítarlega greining, sem byggir á raunverulegum gögnum um afköst rafbíla, athugar hvort rafhlaðan nái enn tilskildu drægi þínu þrátt fyrir erfiða veðurskilyrði.

Industrial plant with pipes, tanks, and metal structures against a cloudy sky.

Umhverfisáhrif

Fáðu nákvæmar niðurstöður á útblæstri bifreiðaflotans út frá raunakstri og fylgstu með minnkun eftir því sem fyrirtækið stígur skref í orkuskiptum.

Með því að mæla umhverfisávinninginn af því að skipta yfir í rafbíla sérðu hvernig kolefnislosun flota þíns mun minnka sem og heildarlækkun eldsneytis miðað við raunverulega tölfræði flotans.

Black background with diagonal neon green stripes

Hvernig virkar greiningin?

Hæfnismat hefst við að staðsetja mælitæki (GO-9 OBD II) í OBD port bifreiða fyrirtækisins sem ætlaðar eru til að sækja gögn. Geotab er í grunninn leiðandi flotastjórnunarkerfi á heimsmælikvarða með yfir þrjár milljónir bifreiða í flotastýringu um allan heim sem og á Íslandi (sjá hér).

 

Í kjölfar ísetningar hefst sjálfvirk gagnasöfnun á sama tíma og flotinn sinnir áfram daglegum rekstri sínum. Akstursnotkun er greind frá 6 mánuðum upp í 18-24 mánuði eftir ákvörðun fyrirtækis og tegund flota. Niðurstöður skila nákvæmum lausnum miða við raunakstursmælingu út frá framboði rafdrifinna bifreiða á markaðnum ásamt fjárhagslegum útreikning á kostnaðarábata sem og umhverfisávinning.