Rafbílastöðin og Heilbrigðisstofnun Norðurlands (e. Health Care Institution of North Iceland) hafa nú undirritað samkomulag um vegferð orkuskipta og greiningarvinnu með Rafbílastöðinni undir yfirheitinu Flotastjórnun til framtíðar sem felur í sér vinnu við orkuskipti, innviðauppbyggingu og markvissar aðgerðir til að stuðla að vistvænum akstri í flotastýringu með flotastjórnunarkerfi GEOTAB. Stofnunin hefur nú fullkomna yfirsýn yfir bifreiðaflota fyrirtæksins og mun áframhaldandi gagnasöfnun tryggja lifandi bestun í ákvörðun orkuskipta samhliða þeirri reynslu sem myndast.
Verkefni
Orkustofnun, HSN og Rafbílastöðin hafa síðastliðið ár unnið að sértækri greiningarvinnu á bifreiðaflota stofnunarinnar fyrir orkuskipti og uppbyggingu hleðsluinnviða. Bifreiðafloti Heilbrigðisstofnunar Norðurlands eru ríflega 40 talsins og þjónusta Norðurlandið eða allt frá Blönduósi til Þórshafnar á Langanesi.
Árið 2023 hófst verkefnið með innleiðingu á greiningarbúnaði í allar bifreiðar stofnunarinnar til gagnasöfnunar í tilgangi orkuskipta og innviðagreiningu. Eitt af fyrstu skrefum allra fyrirtækja með bifreiðaflota sem ætlar sér að vinna að sjálfbærnimálum er að ná þessari yfirsýn og vinna markvisst að sjálfbærni í notkun flotans með orkuskiptum og vistakstri. Bílarnir hafa nú safnað raungögnum, um akstursferðir og hvar þeir dvelja mest, yfir heilt ár í starfsemi stofnunarinnar. Þetta gefur nákvæma og góða yfirsýn yfir notkunarmynstur flotans og niðurstöður um hvar eigi að byggja upp hleðsluinnviði út frá raun hleðsluþörf.
———
Á vef Veðurstofu Íslands kemur fram að frá fyrsta vetrardegi 2023 til sumardagsins fyrsta 2024 var óvenju kalt á Íslandi og þá sérstaklega á Norðurlandi. Niðurstöður gagnagreiningar sýna fram á skýran fjárhagslegan og umhverfislegan ávinning til skemmri og lengri tíma af orkuskiptunum Að auki sýna gögnin að það er ekki vandkvæðum búið að skipta öllum bifreiðaflota stofnunarinnar yfir í orkunýtnari lausn eins og rafbíla þrátt fyrir krefjandi vetraraðstæður.
Árangurinn
Á tímabilinu hefur stofnunin samhliða innleitt 8 hreina rafbíla í flotann með góðum árangri. Gögnin nýtast áfram fyrirtækinu fram á við í aðgerðaráætlun orkuskipta. HSN heldur áfram að vinna að orkuskiptum og innviðauppbyggingu til næstu ára og byggir það reglulega á raunverulegum og lifandi gögnum úr bifreiðaflotanum í flotakerfi Geotab. Samhliða þeirri vinnu nýtist reynslan hjá stofnuninni við notkun rafdrifinna bifreiða í daglegum rekstri við skipulag og ákvarðanatöku í orkuskiptum.
——
HSN hefur nú undir höndum drög að lifandi aðgerðaráætlun um útskipti rafbíla og uppbyggingu hleðsluinnviða á starfssstöðvum HSN á Norðurlandi. Niðurstöður greiningarinnar sýna fram á litla sem enga röskun á starfsemi við útskipti og tug milljóna sparnað í beinum kostnaði við rekstur bifreiðanna enda sýna gögn að það sé 55%-76% sparnaður á akstri rafbíls miðað við bensínbíl þó kílómetragjald rafbíls sé tekið með í útreikningana, einnig er verulegur ávinningur í minni útblæstri og öðrum óbeinum kostnaði sem fylgir rekstri jarðefnaeldsneytisbifreiða.
Samningur um Flotastjórnun til framtíðar
Rafbílastöðin og HSN hafa nú í kjölfarið undirritað samkomulag um áframhaldandi vegferð orkuskipta og greiningarvinnu með Rafbílastöðinni undir yfirheitinu Flotastjórnun til framtíðar sem felur í sér vinnu við orkuskipti, innviðauppbyggingu og markvissar aðgerðir til að stuðla að vistvænum akstri í gegnum almenna flotastýringu. Stofnunin hefur nú fullkomna yfirsýn yfir bifreiðaflota fyrirtæksins og mun áframhaldandi gagnasöfnun tryggja lifandi bestun í ákvörðun orkuskipta samhliða þeirri reynslu sem myndast.
Vistvænn akstur
Með flotastjórnunarkerfi Geotab mun HSN stuðla strax að umhverfisvænum aðgerðum á bifreiðaflotanum með því að virkja aukin vistakstur innan bifreiðaflota fyrirtækisins. Þar er áhersla lögð á að hafa jákvæð áhrif á akstursþætti sem geta minnkað kostnað, lækkað útblástur og aukið öryggi í umferð, en það fylgir því t.d mikill kostnaðar- og umhverfisávinningur bara að minnka lausagang (e. Idling) flotans.
Fyrir frekari upplýsingar um verkefnið Flotastjórnun til framtíðar, Orkuskipti og Innviðauppbyggingu sem og almenna flotastýringu er bent á að hafa samband við rafbilastodin@rafbilastodin.is.