Aviloo batterí greining til Íslands á vegum Parallel & Rafbílastöðvarinnar.

Um AVILOO

AVILOO GmbH er leiðandi á heimsvísu í greiningu á rafhlöðum rafmagns- og tengiltvinnbíla. Fyrirtækið þróar og selur nákvæmar, hraðar og óháðar prófanir sem meta heilsufar (State of Health, SoH) drifrafhlaðna og greina mögulega galla í notuðum rafbílum. Niðurstöður prófana eru birtar í ítarlegum vottorðum. Allar greiningaraðferðir og vottorð eru TÜV eða CARA vottaðar, sem tryggir fullkomna gegnsæi og öryggi fyrir bæði kaupendur og seljendur notaðra bíla – jafnt í atvinnu- sem einkaeigu.

Fljótlegasta, áreiðanlegasta og yfirgripsmesta greiningarlausnin sem nú er í boði á heimsvísu er AVILOO FLASH prófið. Það er ódýrt, einfalt í framkvæmd og tekur aðeins þrjár mínútur á kyrrstæðum bíl. AVILOO nær nú 95% vörumerkjafjölda á markaðnum.

Vara

Þökk sé þúsundum vandaðra prófana hefur AVILOO byggt upp víðtækan gagnagrunn sem gerir FLASH prófinu kleift að ákvarða heilsufar drifrafhlöðunnar á aðeins þremur mínútum með Plug & Play aðferð. Þetta er mögulegt með sérhönnuðum vélbúnaði sem þekkir sjálfkrafa hvert ökutæki sem prófið nær til.

FLASH prófið fer mun lengra en hefðbundin BMS (Battery Management System) lestur; heilsufarið (SoH) er reiknað af nákvæmni og sjálfstæði með flóknum stærðfræðilegum reiknilíkönum. Þetta gerir samanburð við sambærileg ökutæki mögulegan, metur raunverulega drægni bílsins og ber hana saman við WLTP staðalinn og dæmigerða drægni sambærilegra bíla úr AVILOO gagnagrunninum.

Hitanemagreining (heatmap) greinir galla niður á frumustig og getur jafnvel fundið nákvæmlega gallaða frumu. Þessi samsetning og gæði aðgerða eru einsdæmi á markaði og einstök á heimsvísu.

Allar niðurstöður eru birtar í óháðu vottorði AVILOO og sjónrænt útfærðar í AVILOO PREVIEW, sem gerir þær auðskiljanlegar fyrir bæði fagfólk og almenna notendur.

AVILOO FLASH prófið:

Er frábært verkfæri fyrir kaupendur og seljendur – skilar tafarlausum niðurstöðum og gagnlegum innsýnum. Það er framkvæmt á kyrrstæðum bíl.

  • Hraði: Niðurstöður skila sér innan þriggja mínútna í tölvupósti.

  • Nákvæmni: TÜV eða CARA vottað og sjálfstætt sannreynt.

  • Yfirgripsmikið: Greinir heilsufar rafhlöðu, afkastagetu og hugsanlegan innri galla.

Fyrir ítarlegri greiningu ef þörf er á þá býður AVILOO upp á PREMIUM prófið sem gerir ítarlegra mat en Flash prófið við raunverulegar akstursaðstæður. Þá er bíllinn hlaðinn í 100%, tækið tengt við bílinn og bílinn ekinn niður í 10% og við það fæst ítarlegri niðurstaða.

Kostir:

AVILOO rafhlöðuvottorð bjóða upp á áþreifanlegan ávinning fyrir seljendur og kaupendur rafbíla og skapa „win-win“ aðstæður:

Óháð vottorð AVILOO auðveldar kaup og sölu, styður við samtöl við viðskiptavini og eykur gagnsæi í bifreiðaviðskiptum. Viðskiptavinir eru tilbúnir að greiða hærra verð fyrir raf- eða tengiltvinnbíl sem er með vottorð um heilsu batterís.

Samkeppnisforskot – Traust – Öryggi
81%* viðskiptavina treysta söluaðilum sem sýna fram á rafhlöðuvottorð eða aðgengi að því.

75%* þeirra sem kaupa notaðan rafbíl búast jafnvel við að geta fengið slíka mælingu eða vottorð.

Heilsufar rafhlöðu ræður endurvirði ökutækis og þar með verðlagi bílsins. Með AVILOO vottorðinu er rafhlaðan ekki lengur óvissuþáttur heldur gagnsæ og skýr. Það eykur líkurnar á sölu notaðra rafbíla um 36%*.

*Remarketing Rannsókn 2024 – Van Westendorp Aðferð – Online í Þýskalandi, Austurríki, Sviss, Belgíu, Frakklandi, Bretlandi, Noregi og Svíþjóð, í júní og júlí 2024.

Tilvitnanir frá Marcus Berger, forstjóra AVILOO:

Um rafhlöðuprófanir:

„Óvissan um ástand rafhlöðunnar – sem hefur mest áhrif á endurvirði ökutækis – er stór áskorun fyrir marga sem kaupa notaða rafbíla. Með prófunarlausnum okkar brjótum við niður þessa hindrun og lyftum rafbílamarkaðnum upp á næsta stig. Við bjóðum kaupendum öryggi og aukum vissu. Við einföldum kaup- og söluferlið með vottorðum okkar,“ segir Marcus Berger, forstjóri AVILOO.

Um samstarf:

„Við viljum skapa skýrleika á alþjóðlegum markaði með notaða raf- og tengiltvinnbíla, bæði fyrir söluaðila og kaupendur. Þess vegna erum við afar ánægð með að hafa fundið mikilvægan samstarfsaðila í Parallel. Við erum sannfærð um að þetta samstarf lyfti greiningu rafhlaðna á Íslandi upp á nýtt stig.“

Next
Next

Gervigreind í flotastjórnun | Geotab Ace