Persónuvernd
Fyrirtæki mega nýta staðsetningareftirlit með bifreiðum sínum, svo lengi sem það þjónar skýrum og lögmætum tilgangi. Slík notkun getur til dæmis stuðlað að betra skipulagi í rekstri, aukinni skilvirkni, meira öryggi, betri þjónustu og enn fremur lægri rekstrarkostnaði. Athugið að vöktun í leynd er með öllu óheimil
Ekki er skylt að senda sérstaka tilkynningu til Persónuverndar vegna innleiðingar á ferilvöktunarkerfi eða flotastjórnunarkerfi. Hins vegar ber fyrirtækjum að tryggja að starfsfólk sem ekur á bifreiðum sé upplýst á skýran og tímanlegan hátt um að vöktun geti átt sér stað, til dæmis með upplýsingagjöf á fundum eða í skriflegum tilkynningum í tölvupósti eða skriflega á blaði. Ekki er þó krafist formlegs samþykkis frá ökumönnum. Hægt er að fá drög að skjali fyrir viðskiptavini Parallel til að upplýsa aðila um ferilvöktun með skýrum hætti sé þess óskað.
Fyrirtæki setja jafnframt límmiða í rúður bifreiða eða tækja sem upplýsir ökumann og tilkynna þar með ferilvöktunina.
Parallel minnir alla viðskiptavini sem innleiða flotakerfið á mikilvægi þess að virða persónuvernd í sinni starfsemi, upplýsir um það með reglubundnum hætti á áskriftarreikningum og hefur vinnslusamninga til staðar.
Upplýsingasöfnun með ferilvöktunarbúnaði felur í sér rafræna vöktun í skilningi laga nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga („persónuverndarlaga“), sbr. einnig reglur nr. 50/2023 um rafræna vöktun. Ábyrgðaraðili vöktunarinnar er fyrirtækið sem innleiðir búnaðinn.